Best að prófa að blogga og þá um bloggið

Ég var að skoða mig um á mbl.is og sá þar listann sem hægt er að fá yfir vinsælustu bloggin. Minnz er í 334. sæti Blush

En það var ekki það sem vakti athygli mína á þessari síðu heldur aðsóknartölurnar í heild sinni. Og þá sérstaklega tölurnar um gesti per dag. Þessi tala er fyrir vinsælustu bloggin um 2.400 gestir. Sem ég verð að viðurkenna að kom mér á óvart, ekki há tala þarna á ferð. Ég hef verið einn af umsjónarmönnum spjallvefs sem fékk um 5.000 - 7.000 gesti á dag lágmark og þykir ekki sérstaklega stór síða. Þannig að ég hélt að hinir netvæddu Íslendingar ættu að geta náð amk 10.000.

Þetta vakti mig líka upp varðandi það að íslenskir bloggarar eru þrýstihópur. A.m.k er hér hópur sem fær töluverða athygli og umfjöllun á skrifum sínum í fjölmiðlum miðað við fjölda. Og þá er ég að tala um  fréttir sem fjalla um hluti sem hafa farið um bloggheiminn, bloggheimurinn þetta, bloggheimurinn hitt.

Ég skil það að miðill sem býður upp á instant og víðtæka birtingu skuli njóta vinsælda og hafa áhrif en mér finnst samt að +2.400 gestir per dag ekki réttlæta þau áhrif sem manni finnst vera upplifa hérna.

Þetta gæti verið rugl í mér en mér finnst fjölmiðlar þurfa að fara að vara sig á því sem fólk segir hér á netinu, blogginu. Því að það sem einkennir bloggmenninguna í heild sinni er hvað fólk er óhamlað og eðlilegt í skrifum sínum á blogg. Fólk skrifar oftast á síður sínar líkt og það sem það segir við hvert annað á kaffistofum eða einkasamræðum. Bloggmenningin er í það hraðri útbreiðslu hér á landi að fólk hefur ekki haft tíma til þess að venjast því að þetta er fjölmiðill og að aðrir fjölmiðlar lesa þetta og breiða boðskapnum út.

Það sem þetta raus í mér er um er bara það að mér finnst að fólk þurfi að fara mun varlega með skrif sín. Ég er hins vegar algjörlega á móti hverskonar hömlum eða ritskoðun af hálfu stjórnvalda á netinu. Netið er nánast síðasta frjálsa svæðið sem ég get ímyndað mér. Þetta er enginn paradís en ég myndi ekki vilja breyta neinu. Þetta er yndislegt fyrirbæri, get ekki lifað án þess Whistling

Bleh ætla að læra meira fyrir prófið núna á eftir.... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Spáðu, það eru illmenni sem vilja takmarka frelsið okkar á netinu; ógeðsleg aðför að frelsi okkar

DoctorE (IP-tala skráð) 12.3.2008 kl. 13:31

2 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Ég er ekki viss hvað þú ert að gagnrína.  Er það;

1. Hversu fáir skoða hverja síðu(verður að athuga þetta eru iptölur ekki flettingar).

2. Að fólk geti bloggað við fréttir

3. Að fólk kunni sig ekki oft á tíðum og fjölmiðlar verði að bera meiri ábyrgð

Mér finnst reyndar allt í lagi að setja grunnreglur, það eru ekki hömlur heldur bara svo hlutirnir gang smurt fyrir sig.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 12.3.2008 kl. 13:55

3 Smámynd: Skaz

þetta var meira bara almenn hugdetta hvað lítill hópur fólks getur haft mikil áhrif. Og í raun það að þessi hópur þarf að átta sig á þessari staðreynd og virða hana.

Ég missi mig oft í svona rausi og var aðallega að reyna að dreifa huganum frá prófi sem ég er að fara í þannig að þetta kom líklega ekkert skiljanlega út frá mér. 

Já ég átta mig á því að þetta eru IP tölur og munin á þeim og flettingum. Sama ip-talan getur falið marga einstaklinga á bakvið sig, kannast við það þegar Wikipedia bannaði IP-tölu HA og maður gat ekkert lagt til þar í smá tíma

Skaz, 12.3.2008 kl. 14:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband