Jæja, er ekki bara kominn tími á Þjóðstjórn?

Ok, paník stjórnarinnar eftir síðasta útspil Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra finnst mér sýna að það er eitthvað sem hefur átt sér stað á bakvið tjöldin sem að mínu mati veikir það traust sem hægt er að veita núverandi ríkisstjórn. Það er vegna þess að ef eitthvað hefur átt sér stað á bakvið tjöldin þá eru menn ekki að hugsa um að gera það rétta í stöðunni heldur það sem þeir geta til þess að koma sér í skjól undan þeirri reiði almennings sem mun koma í ljós.

Þannig að mínu mati þá held ég að það sé ekki forkastanlegt að allir þeir sem komið hafa að þessari krísu haldi áfram vegna þess að það er enginn yfir allan grun hafinn. Þannig að núna er mál að mínu mati að fara í aðgerðir sem hindra að þetta fólk sé að blanda saman hagsmunum þjóðar og síns sjálfs.

Að Seðlabankastjórn víki.
Hún er einfaldlega orðin alltof umdeild til þess að geta starfað í góðri trú. Hvort sem það er réttmætt eða ekki skiptir ekki máli. Það þarf að endurvekja traust og breyta öllu umhverfi og umfangi þessarar stofnunar þannig að við getum allt eins byrjað á þessu.

Yfirmenn FME víkji.
Þessir menn eru nú yfir öllu peningamálum þjóðarinnar. Bankarnir verða að hlýða þeim í einu og öllu. En á sama tíma þá hafa þessir aðilar ekki komið einu sinni í viðtal eða á blaðamannafund að útskýra eða tilkynna gjörðir og stefnur. Það er óásættanlegt í lýðræðisríki. Og eins og um Seðlabankann eru miklar deilur um ábyrgð og vanrækslu á peningastefnunni sem uppi hefur verið hér fyrir bankahrunið. Eins og um Seðlabankann er alltof mikill vafi á ábyrgð. Og það bætir alls ekki úr skák þessi dynjandi þögn sem hefur komið frá þessari stofnun.

Ríkisstjórnin segi af sér.
Þetta er orðið nauðsynlegt. Enginn ráðherra er hafinn yfir grun. Fram hafa komið misvísandi ummæli um hluti frá mismunandi ráðherrum um sömu hluti. Sumir ráðherrar hafa orðnir uppvísir af því að fara með fleiprur og jafnvel það sem kalla mætti beinar lygar. Atburðarrásin sem leiðir að þess bankahruni er umvafin leyndarmálum. IMF málið er umvafið leyndarmálum. Og eins og ég minntist á áður þá er bara í ljósi síðasta útspils Davíðs að meira er búið að vera í gangi á bakvið tjöldin og að það sé eitthvað sem ekki þolir dagsins ljós er eitt nóg til að þessi ráðstöfun sé nauðsynleg.

Alþingi sé rofið.
Það er sama ástæða á bakvið þetta og ríkisstjórnina. Þingmenn virðast hafa haft mismunandi aðgang að upplýsingum eftir flokkum og persónulegum samböndum. Ríkisstjórnin virðist hafa sneitt framhjá upplýsingarskyldu sinni en "uppfyllt" hana á tæknilegan hátt með því að upplýsa valda Alþingismenn. Stjórnarandstaðan hefur fengið litlar upplýsingar og oftast eftirá.
Betra er að hreinsa alveg út af þingi heldur en að reyna komast að því hverjir séu útvaldir eða ekki.

Utanþingsstjórn eða Þjóðstjórn.
Það þarf að skipa Þjóðstjórn sem hefur umboð fram á vor eða í sex mánuði. Hlutverk þessarar stjórnar væri að rétta landið af efnahagslega og að koma af stað óháðum rannsóknum á gjörningum allra sem komið hafa að ákvarðanatöku vegna bankakrísunar. Réttast væri að þessi stjórn myndi einnig fara í gagngerar endurskoðun á stjórnarfyrirkomulagi íslenska ríkissins og hlutverkaskipan Alþingis, Ríkisstjórnar og Hæstaréttar. Peningakerfi landsins yrði að taka til gagngerar endurskoðunar.
Réttast væri að þessi stjórn hefði umboð í 6 mánuði í senn sem væri hægt að endurnýja einu sinni með kosningum.

Þetta eru mínar hugmyndir um hvað þyrfti til svo að núverandi krísa myndi fá a.m.k. virka úrvinnslu. Núverandi ráðamenn virðast mestmegnis vera uppteknir af því að fría sig frá nokkurskonar ábyrgð. Forsætisráðherra þykist enga ábyrgð bera þó svo að þetta hrun eigi sér stað á hans vakt og að hann sé æðsti maður ríkisstjórnarinnar. Þegar skip verður fyrir óhappi er skipstjórinn alltaf ábyrgur jafnvel þó svo að um að mistök undirmanna valdi óhappinu. Það er hans að tryggja að undirmenn hans hafi þekkingu og vitneskju til þess að vinna starf sitt á réttan hátt.
mbl.is 6 fundir með seðlabankastjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)

Í raun og veru skiptir ekki máli hvort slæmur bílstjóri sé við stjórn bílsins eða í aftursætinu, það stafar alltaf hætta af honum

Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock), 18.11.2008 kl. 21:14

2 Smámynd: Skaz

Já, en hlutfallslega þá stafar aðeins minni hætta af honum ef þú er búinn að henda honum í aftur sætið eða jafnvel í skottið, eins og ég er kominn á skoðun með að þurfi að gera varðandi núverandi stjórnendur þessa lands.

Það er með ólíkindum að persónulegar deilur eins og manni sýnist þetta vera að snúast upp í núna. Geti verið látnar hafa áhrif á hag allrar þjóðarinnar. Það þarf að fara að taka mjög mikilvægar og afdrifaríkar ákvarðanir um framtíð þjóðarinnar og ég persónulega er ekki hrifinn af því að þetta fólk sem virðist aðallega vera að taka þátt í einhverskonar skrifstofu pólitík sín á milli sé það fólk sem taki þessar ákvarðanir. 

Skaz, 18.11.2008 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband