7.3.2008 | 20:54
bleh...
Keyri um á díseljálk sem ekki telst eyðslumikill.....en þetta er orðið meira en brandari. Ríkið vogar sér að láta eins og ekkert sé að....
Þetta er svolítið einkennandi fyrir Árna Matt og Geir Haarde að þegja og svara ekki í símann. Þetta er svolítið svona þegar maður sér að Gallup eða einhver af þessum dæmum er að hringja og maður sleppir því að svara.
En þvermóðskan vinnur eins og venjulega og þessir menn eru kjörnir á Þing aftur og aftur og aftur.......
Og íslenskur almenningur......jahérna við gerum ekkert nokkurn tímann þegar gert er á okkar hlut. Það er nefnilega svo hallærislegt að mótmæla eins og bjáni. Það skilar engu.....
Bensínið í 141,80 kr. og dísil í 149,80 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þú ert svo pólitískur!!
Ég er viss um að þú ert á fölskum forsendum, því þú ert ekki svona pólitískur í tíma eða yfir pizzu þegar við eigum að vera að læra :P
Hugrún Jónsdóttir, 10.3.2008 kl. 09:52
tíhíhí, ég er bara missa mig
Skaz, 10.3.2008 kl. 23:35
Já og þegar ég hugsa um það þá verður maður að eiga sinn löst, ég er laumupólitíkus.....hver er þinn?
Skaz, 10.3.2008 kl. 23:44
Hvaða löstur?? Hvað meinarðu, ég hef enga lesti!
Hugrún Jónsdóttir, 12.3.2008 kl. 14:04
Hvað með að vera á móti lyfjum gagnvart ADHD þann 26. mars næstkomandi?
Skaz, 12.3.2008 kl. 14:05
Herðu, ég reyni það
Annars er það ekki persónulegt, nema að Ársæll gefi mér lága einkunn, þá fyrst fer þetta að verða persónulegt!!! Múhahahaha!!!
Hugrún Jónsdóttir, 12.3.2008 kl. 14:09
Minntu mig á að koma mér aldrei í aðstöðu til þess að kenna þér eða gefa þér einkunn í nokkru fagi.
Skaz, 12.3.2008 kl. 14:10
Dona dona... Ég sting þig bara...
Hugrún Jónsdóttir, 12.3.2008 kl. 14:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.