8.10.2008 | 10:14
Computer says no
Það er eðlilegt að þetta komi sem sjokk fyrir bretana, enda miklar upphæðir hér um að ræða. Og þeir sáu ekki Davíð útskýra "masterplanið" í Kastljósinu í gær.
Held að endanleg niðurstaða verði einhver skipting á ábyrgð. Mikið af þessum innistæðum er sagður hafa verið í sjóðum eins og Sjóð 9 hjá Glitni og tryggingasjóðurinn okkar tryggir ekki svoleiðis...bara að útskýra það fyrir bretunum í stað þess að segja bara "computer says no"
Brown hótar aðgerðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það voru eingöngu venjulegir tryggðir innlánsreikningar í Icesave, engir ótryggðir sjóðir. Íslenski tryggingasjóðurinn á að ábyrgjast upp að €20.887 fyrir hvern reikning.
. (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 10:28
Hljóðið sem heyrist, er í dómínókubbunum að falla...
Sarajevo 28.6.1914
Pólland 1.9.1939
Tonkin flói, Víetnam 2.8.1964
Falklandseyjar 2.4.1982
Tskhinvali, S-Ossetíu 7.8.2008
Reykjavík 7.10.2008
(Fleiri atburði mætti nefna en listinn yrði langur)
Við erum aðeins smápeð í geópólitísku endatafli, en í skák er peðunum gjarnan fórnað fyrst...
Guðmundur Ásgeirsson, 8.10.2008 kl. 11:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.