Það sem mig langar...

Mér líður ekkert vel. Er eimanna og leiðist. Langar í margar hluti sem ég get einhvern veginn ekki komið mér til þess að koma þeim í framkvæmd. Dæmi:

Mig langar út að skemmta mér. Bara allir kunningjar mínir fluttir. Enginn eftir hérna í þessu krummaskuði.
Mig langar að kynnast hinu kyninu. Í allri hreinskilni? Ég hef aldrei verið í sambandi. Aldrei átt kærustu. Aldrei þorað þess háttar samskiptum við stelpur. Yfirleitt alltaf of fullur til að þola við á skemmtistöðum lengur en kortér.
Mig langar að stunda áhugamál af alvöru. Ég þori ekki í nein félög, þarf að spyrja spurninga og þá lít ég heimskulega út. Eða það segir kvíðinn mér.
Mig langar til þess að gera eitthvað klikkað og heimskulegt og ekki að hafa áhyggjur af því hvað öðrum finnst.

Ég hata að ráða ekki við kvíðann...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þá er bara að flytja úr krummaskuðinu ,. eða það gerði ég allavega . Good luck pal ..

conwoy (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband