Færsluflokkur: Bloggar
22.11.2008 | 16:06
Hlustaði á ræðuna
og fór allt í einu að velta því fyrir mér hvort að þessi kona, Katrín ætlaði ekki örugglega að bjóða sig fram til þings.
Fengi mitt atkvæði.
Sýndi það sem vantar núna í pólitíkusa.
Íslendingar láti ekki kúga sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.11.2008 | 13:43
Bíðið nú andartak, hvað með...
Þjóðhagspánna sem átti að hafa tafið fyrir IMF umsókninni í okt. vegna framleiðslu hennar?
Var hún kannski aldrei gerð?
Sagði Geir H. Haarde okkur ósatt?
Fjárlagavinna gengur ekki neitt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.11.2008 | 08:56
Það er nú þegar pólitísk óreiða.
Og er meira að segja hægt að persónugera hana í einum manni, hæstvirtum seðlabankastjóra Davíð Oddssyni.
Maðurinn hefur ekkert gert nema ráðist að öllum nema sjálfum sér og sinni stofnun. Hann hefur verið með úthúðanir í garð útrásarvíkinganna, fjármálaeftirlits, ríkisstjórnarinnar og litlu ósýnlegu álfanna sem búa undir sólpallinum hans.
Maðurinn er vægast sagt búinn að vera til meiri vandræða en góðs að manni sýnist. Af hverju Geir er tilbúinn að sitja undir þessu er umhugsunarvert. Sérstaklega í ljósi þess að hann urrar og geltir á fréttamenn þegar þeir spyrja gagnrýnna spurninga.
Ég held að kosningar séu þarfar. Óreiðuna núna og hvern dag fram að kosningum verður hægt að bæta upp að miklu leyti með vinnufrið og minna umdeildum þingmönnum eftir kosningar.
Það að þau eru farin að tala um þetta og hafna kosningum segir bara til um það að það er verið að pressa á þau af mörgum aðilum um þetta atriði.
Mestu deiluefnin felld úr gildi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.11.2008 | 12:31
Færum mótmælin útfyrir landsteinana
Ég vil benda fólki sem ekki er sátt við núverandi stjórnendur að nú er komið upp ástand þar sem að við getum haft áhrif á það hvort að liðið víkji eða ekki. Með því að krefjast þess við IMF að þeir haldi eftir lánunum þar til að nauðsynlegar endurbætur hafi verði gerðar á ríkisstjórn og fjármálastjórn landsins.
Þessar aðgerðir er hægt að sjá á þessari síðu hér:
http://asthildurcesil.blog.is/blog/asthildurcesil
Nýja Seðlabankastjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.11.2008 | 10:44
Má hann komast upp með þetta?
Nú er ég í vafa vegna þess að hingað til höfum við bara leyft ráðherrum að komast upp með allt hér á landi. Þeir hafa mátt segja ósatt, skipa vini og ættingja vina sinna í há embætti og auðvitað fyrrverandi ráðherra í embætti sem þeir hafa enga menntun í o.s.frv. Svo náttúrulega hafa ráðherrar mátt taka ákvarðanir þvert á lög og reglur og hæfi vegna eignatengsla. Þeir hafa mátt gefa vinum sínum ríkisfyrirtæki á spott prís og margt margt annað sko...
En nær þetta líka yfir ráðuneytisstjóra? Ég bara veit ekki...veit einhver þetta? Eru ráðuneytisstjórar líka "ábyrgir" gjörða sinna líkt og ráðherrar?
Almenningur vissi ekkert um fundinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2008 | 18:05
Atvinnutækifæri?
Enn einu skipinu rænt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2008 | 13:12
OK, markmið vikunnar...
...er þá að koma þessu liði sem er í "umboði" okkar búið að koma því þannig fyrir að bankakerfið er farið á hausinn og núna skuldum við ótilgreinda þúsundir milljarða króna í erlendar skuldir bankanna sem þau áttu að vera hafa hemil á.
Þetta þarf að gerast áður en lánið frá IMF kemur hingað. Mynduð þið treysta óreiðumanni sem nún þegar væri búinn að gera sig gjaldþrota til þess að höndla peninga sem þið fengjuð lánað?
Hvernig væri að fólk færi núna niður á Austurvöll í dag og á morgun og virkilega mótmælti? Ekki þetta happy happy joy joy dæmi sem er búið að vera takmarkað við laugardaga og ræður.
Það þarf eitthvað að gerast til að koma núverandi óreiðumönnum á Alþingi út úr fantasíulandinu þar sem þetta gerist og þeir sitja áfram í störfum sínum eins og ekkert hafi gerst.
DV birtir yfirlýsingu stjórnvalda til IMF | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.11.2008 | 00:20
ohh ég hélt að þessi frétt væri um...
...moldvörpurnar og strútana á Alþingi. Og skildi ekkert í þessari niðurstöðu.
En já hvalveiðar. Ég er ekkert spenntur fyrir hvalkjeti. Ekkert mótfallinn þessu heldur sérstaklega. Svo lengi sem veiðarnar séu vel þolanlegar af stofninum. Afhverju þessi spendýr fái sér ummönnun eftir að vera komin úr hættu er ekki skiljanlegt.
Held að eftirspurn eftir hvalkjöti sé lítil og sértæk. Á aldrei eftir að ná sömu hæðum og hér áður fyrr.
Ekki nauðsynlegt að skjóta þá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.11.2008 | 05:58
Hversu dýrt ætli við höfum selt okkur?
Það er að segja upp í skuldir.
Nokkuð viss að ef "eignir" Icesave og KB Edge væru til staðar að þá myndu Bretar og Hollendingar ekki vera að standa í þessu veseni. Mest er ég nú hræddur um að þessar eignir séu einskis virð, pappír um hluti í hinu og þessu fjárfestingarfyrirtæki sem enginn vill neitt með hafa í dag.
Og þá kemur að okkur, hinum dyggu skattgreiðendum Íslands að borga afglöp úrásarinnar og eftirlitslausrar ríkisstjórnar.
Eitt er samt víst, þetta verður okkur dýrt. Og munum þá í lengur en 5 mínútur að skipsstjórinn sem strandaði skútunni er ennþá í brúnni og heldur fast í stýrið.
Lánsumsókn Íslands hjá IMF afgreidd á miðvikudag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.11.2008 | 23:32
"Viðbrögð" og "aðgerðir" ríkisins til hjálpar heimilunum í landinu.
- Í fyrsta lagi þá er einfaldlega verið að gefa fólki lengri tíma til þess að borga skuldir sem eru að hækka algjörlega upp úr öllu vitrænu valdi. Og afhverju ekki 20% strax? Þetta er örvæntingarpakki þar sem að þau vonast til að ástandið lagist nægilega á rúmu ári til að fólk geti farið að borga af þessu á viðráðanlegan hátt.
- Í öðru lagi þá á verðbólga eftir að éta þetta fyrirkomulag upp. Treystið mér, ástandið verður verra og mun vara lengur en spár ÞEIRRA (allra þessara sem ekki sáu bankahrunið fyrir á meðan allir aðrir sáu það koma) segja nokkurn tímann fyrir um.
- Í þriðja lagi þá verður viðvarandi atvinnuleysi hérna, jafnvel þó að þessar aðgerðir hjálpi mörgum í einhvern tíma þá mun þetta ekki gera neitt fyrir fólk sem þarf að lifa af atvinnuleysisbótum.
- Í fjórða lagi þá er það asnalegasta sem ég hef heyrt að Íbúðalánasjóður muni bara leigja fólki sem tapar húsinu til hans. Afhverju er ekki þá bara samið um að leigan sem það greiðir sé partur af láninu? Að endursamið sé um að fólk borgi það sem það ráði við í X langan tíma og það svo endurskoðað? Alveg óþarfi að ríkisstofnun sé að hirða heimilið af fólki.
- Og í fimmta og síðasta lagi, hvað annað en skattahækkanir eigum við eftir að sjá? Ekki skattalækkanir nú þegar massífur niðurskurður er kominn í hönd hjá ríkinu með tilheyrandi atvinnuleysi. Eftir að ríkið er búið að skera niður allar greiðslukostaðinn þá kemur það að sjálfsögðu með forgangsrétt á að taka af okkur þann pening sem við ætluðum að redda þessum greiðslum með. Sanngjarnt? Með þessu komum við næstum á sama stað og við erum í dag nema auðvitað með hærri verðbólgu. Og fólk ræður ekki við afborganirnar strax í dag!
Þetta lyktar allt af Sjálfstæðisflokknum, flokkur sem ekki veitir neinum nema sínum félögum og vinum nokkurn greiða eða hjálp.
Geir talar um samstöðu og að vinna saman, ég sé enga samstöðu í þessu tilboði hans. Og þetta er tilboð og ekkert annað því að hugmynd Geirs um ríkið er að reka það einsog stórt og valdamikið einkafyrirtæki. Þar sem að maður talar við kúnnana og gantast við þá kannski en í lokin eru þeir alltaf samt bara "kúnnar" en ekki persónur og vinir.
Maðurinn er haldinn mannfyrirlitningu og stórmennskubrjálæði. Sérstaklega í ljósi þess að eftir allt sem hefur dunið yfir á þjóðinni síðastliðnar vikur segist hann ekki sjá NEINA ástæðu til þess að segja af sér.
Ef að Sjálfstæðisflokkurinn verður í ríkisstjórn eftir næstu kosningar ef þá þær verða haldnar á næsta ári, forsendan er auðvitað að Geir víki og boðað verði strax til kosninga ég bíð ekki eftir þeim í tæp 3 ár með Geir & co við stýrið. Ef þetta gengur ekki gegn þá ætla ég ekki að búa á þessu landi meir. Ég er tiltölulega ungur, hálfþrítugur, að klára háskóla og vil búa í landi þar sem er tekið meira mark á vilja almennings frekar en flokkstrúnni og þar sem að ráðamenn koma fram við almenning eins og manneskjur en ekki viðskiptavini. Og þar sem ég get verið sæmilega viss um að hagkerfið rokki ekki upp og niður eins og jójó.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)