Færsluflokkur: Bloggar

Stressaður strax?

Miðað við Spears genin sem stúlkan fær og hegðun Spears systranna hingað til hefur hann u.þ.b. 14-16 ár til þess að undirbúa sig fyrir herlegheitin. En já ég myndi líka vera stressaður Whistling
mbl.is Litla Spears eignast dóttur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það væri verkefni allra að takast á við hinar breyttu aðstæður."

Finnst þetta nú dálítið fyndin setning hjá manni sem hefur gagnrýnt fólk fyrir að skipta sér af þegar það tjáir sig um aðgerðir núverandi ríkisstjórnar og segir að hann viti best og ráði öllu.

En já ég hef alltaf verið á móti þessari leyndó stefnu sem tíðkast í alltof mörgum málefnum. Þ.e.a.s. stjórnendur eða ábyrgðar aðilar segja engum neitt hvað þeir eru að reyna að gera eða afhverju þeir eru að gera hluti og gelta og urra svo á fólk sem er að reyna að túlka aðgerðir þeirra með þær upplýsingar sem eru til staðar. Og guð forði manni frá því að túlka rétt og gagnrýna! þá sko bitið líka.

Geir virðist þola illa fólk sem ekki skilur hlutina en finnur það ekki til hjá sér að úrskýra þá betur. Minnir mig á stærðfræðikennara sem ég hafði einu sinni, held að hann hafi verið rekinn á endanum. Kennir a.m.k. ekki stærðfræði lengur.... 


mbl.is Telur að ríkisstjórnin eigi að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitíkusar Íslands takið eftir....

SVONA axlar maður ábyrgð...
mbl.is Hættir sem fréttamaður á Stöð 2
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GAS? GAS? GAS?

Hvar er gasmann?

Gaman að sjá að það er að verða ,,kúl" að mótmæla hér á landi. Þótt að málstaðurinn sé á huldu eða gráu svæði eða kannski bara að mótmæla almennt gegn yfirvöldum. Von fyrir þessa krakka ennþá, annað en þeir sem mótmæltu sumarið 1968 og stjórna öllu í dag...

Man þegar ég var í Menntó þá var þetta að þróast í þessa átt en alls ekki á þessum mælikvarða, alls ekki.

En já gaman að sjá að þessir krakkar eru tilbúnir að gera og að löggan er allavega ekki til í að berja og spreyja táragasúða á þau....fyrr en allavega eftir mánuð af svona aðgerðum a.m.k.


mbl.is Ungmenni tefja umferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Utandagskrárumræður

Langar dulítið að sjá hvaða nafngift Björn Bjarna og Geir Haarde fá frá Steingrími J. fyrst að Davíð Odds er með skítlegt eðli....en ekki gekk hann nokkurn tíman svona hart fram en erfitt að panikka þann mann með smá mótmælum held ég.

En jú þessar aðgerðir heyra til undantekninga hér á landi og ég tel alveg ástæðu til þess að Alþingi fái að heyra hvað mönnum gekk til með að taka svona á málum... 


mbl.is Vilja fund í þingnefnd vegna lögregluaðgerðanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlaut að koma að því.

Var viðbúinn því að þetta myndi gerast fyrr eða síðar. Lögreglan hefur sýnt stigvaxandi aðgerðir eftir fyrstu mótmælin þar sem rætt var menn og þeim gefið í nefið.

Eftir það atvik fór löggan að taka myndir og skrá niður dót og augljóst að þeir hafa fengið skýr skilaboð að ofan um að byrja að bregðast við þessum mótmælum.

Geir Haarde náttúrulega pirraðist helv. mikið þegar þeir náðu honum í Listasafninu og gæti hafa rætt við Bjössa "Bombu" Bjarnason og sá hin sami rætt við sína menn. Sem er skylt að hlýða honum skv. lögum.

Þetta eru allt getgátur en ég tel að átökin í dag hefðu ekki átt sér stað nema með vilja Lögreglunnar til þess að auka hörkuna í þessu máli. Og ábyrgðaraðilinn er þá væntanlega dómsmálaráðherra. Og við vitum öll að hann mun "axla" ábyrgð líkt og allir pólitíkusar Íslands.

En ath auðvitað voru þetta ólöglegar aðgerðir og löggan "mátti" grípa inní en þessar aðgerðir tel ég að hafi verið af alltof mikilli hörku. Tel að Árni Matt eða Stjáni Möller hefðu getað látið sjá sig þarna og róað menn. En núna eru pólitíkusarnir að sýna sinn rétta lit : "Vinnið vinnuna ykkar og borgið skatta, við sjáum um rest og hugsum fyrir ykkur. Ef ekki þá látum við lemja ykkur!"

Nett pirraður ef að þetta er hvernig þeir ætla að taka á öllum mótmælum sem gætu farið að komast af stað með hækkandi verðlagi hér á landi. Þegar fólk fer að vera pirrað á hækkandi kostnaði á nauðsynjavörum þá er ég hræddur um að fólk sleppi því að tuða bara. Íslendingar nútímans virðast núna vera búnir að fá nasþefinn af mótmælum.

 

Vil benda á þessa færslu sem lýsir atburðinum svipað eins og ég heyrði hann frá öðrum aðila.


mbl.is 21 handtekinn í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lúmskir sjallarnir

Þetta er dulítið lúmskt hjá Pétri Blöndal og ekki laust við að maður dáist að því hversu skarpur maðurinn er, enda ekki hver sem er sem getur haldið því fram í Kastljósi (nokkur ár síðan) að hægt sé að lifa af á 100 þús krónum.

En allavega þá er það greinilegt að ríkið ætlar að hrósa sér fyrir forsjálni sem átti sér stað fyrir 9 árum síðan. Hvort að þetta er rétt hjá þeim eða ekki er allt annað mál. Þess ber þó að geta að díesel væri þónokkuð lægra í dag ef að þessi breyting hefði ekki átt sér stað. Keyri ég um á díesel jálk og var að horfa á $"#$!$$ ÓB skiltið á móti sem loga á stafirnir "160,8" sjitt hvað ég væri til í verðið sem var þegar ég fékk bílpróf. 

Finnst svona "auglýsingar" fáránleg hegðun manna sem neita svo að svara spurningum fjölmiðla um svipaða hluti. Alþingi er ekki staður til þess að vera að gorta af því sem gerðist fyrir áratug við allt allt aðrar aðstæður.


mbl.is Bensínverð væri 180 krónur ef bensíngjaldi hefði ekki verið breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju er ekki...

Hægt að grípa til svipaðra ráðstafanna varðandi eldsneyti? s.s. að minnka/fella niður krónutöluna sem er á hvern líter. Ég meina ríkissjóður er búinn að áætla innkomu frá þessum lið varðandi fjárlög og hlýtur að sjá fram á töluverða aukningu á þeirri tölu. Er ekki hægt að sætta sig við skerðingu í átt að upphaflegu tölunni? Eða er ástand ríkissjóðs eða áætlun fjárlaga svona hrikalega slæm/vitlaus...

Ég bara spyr... 


mbl.is Kjarnfóðurtollur felldur niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slegið á putta...

Og ekkert meir. Auðvitað er það harkalegt að reka manninn fyrir eitthvað sem er umdeilt en það var dómurinn að hann hefði brotið á höfundarrétti Laxness. Og ég þori að segja það að ef hér væri nemandi við HÍ þá hefði honum verið vísað úr skólanum án tafar...

Ef að HÍ vill komast að 100. sætinu hvað þá upp fyrir það þurfa þeir að auka kröfur um hegðun og hæfni og mér finnst þetta ekki í þá átt...

Það væri gaman að sjá þetta bréf og hvaða vinnubrögð eru hér nákvæmlega á ferðinni sem rektor setur út á. 

Þetta er nú svolítill gunguskapur að amk átelja þetta ekki harðar. Erlendis hefði hann verið rekinn. Kannski ekki á opinberan og sýnilegan hátt en hann hefði ekki verið vinnandi á næstu önn. T.d var þessi gaur rekinn fyrir skrítið atvik

 

Breytt:

ah Ég var of snöggur að skrifa, fréttin var ekki fullkláruð. Bréfið mun harðara heldur en ég ímyndaði mér. Greinilega hörku kerla sem hér er á ferð. Ef að fordæmi hefðu verið fyrir meðferð svona máls og reglur um áhrif áminningar hefði hún sparkað honum fastar en #$!"#%.....W00t

Mér rennur kalt á milli skinns og hörunds að hugsa til þess hvað hefði gerst ef að hér hefði verið einkaskóli á ferð eða sjálfstæðari ríkisskóli.Shocking


mbl.is Átelur vinnubrögð Hannesar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég þori ekki að anda...

því hver veit, ég gæti verið sýktur af einhverju sem gæti valdið almannahættu ef ég andaði frá mér.

Mótmæli eru alltaf truflandi og ég vil benda á ríkið sem skapar þær aðstæður að þörfin er á þessum mótmælum. En ekki vegna þess að þeir lækka ekki gjaldtöku heldur almennan skort á því að ráðamenn geri eitthvað eða segi eitthvað afgerandi. Það er óvissan sem heldur þessu gangandi og svo lengi sem ráðamenn þegja því meiri líkur eru á að eitthvað alvarlegt gerist.


mbl.is „Klárlega almannahætta"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband