Færsluflokkur: Bloggar

Fullkomlega eðlilegt.

Get ekki sagt annað en að mér finnist þetta vera ósköp í anda NATO samstarfsins sem við eigum við þessar þjóðir. Hef heyrt að það sé víst eftirsótt að notast við Ísland sem æfingarsvæði sökum fjölbreytileika þess.

Og ef fólk heldur að 100 manns sé fjölmennt lið.....hehehehe mest af þessu er viðhalds- og stjórnunarbatteríið sem fylgir hersveitum almennt.


mbl.is 100 manna frönsk flugsveit á leið til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

kommon!

Hér er á ferðinni dæmdur ritþjófur sem ætti að reka úr HÍ.

Auk þess sem að maðurinn stærir sig af því að vera vinur margra stórmenna í íslenskri pólitík sbr. Wikipedia síðunum hans ensku t.d. þar sem hann hefur víst sett inn þessar myndir allar.

Þessi maður á ekki skilið að vera kallaður baráttumaður fyrir frjálsu samfélagi þar sem að hann hefur ævinlega verið munnstykki Sjálfstæðisflokksins og vina þeirra og hagsmuna.

Ástæðan fyrir erlendum málssóknum á hendur Hannesi tel ég vera það að hann telji sig yfir aðra hafna sökum tengsla sinna og tjái sig því óhamlað og án mannasiða um menn og málefni. Það að þetta er tekið fyrir erlendis er væntanlega vegna tengsla Hannesar við ráðamenn sem skipað hafa mjög í dómarastöður eftir flokksskírteinum og ættatölum.

Þess ber að geta að ég er minna hrifinn af Jóni Ólafssyni og ætla ekki að tjá mig um þann mann af réttmætum ótta við að segja eitthvað sem hann myndi kæra mig fyrir. 


mbl.is Söfnun fyrir Hannes Hólmstein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilvísanir í rannsóknir?

Ég er menntaður í félagsvísindum og það pirrar mig agalega að sjá það að mogginn sleppir að vísa í heimildir í fréttum sem þessum.

Aðallega samt vegna þess að þetta er rannsókn sem ég væri til í að lesa samt Wink

 

Fann 'ana, birtist í Neuron 27. mars  


mbl.is Heilinn skynjar sætabrauðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu mörg mál?

Hafa lögreglumenn kannski lokið á þennan hátt? Gæti verið að þetta sé vaninn hjá sumum lögreglumönnum að knýja fram falskar játningar með hótunum og látum?

Finnst að þetta ætti að fara í innra eftirlitið hjá löggunni og áminning eða meira væri viðeigandi, þetta er ekki það sem þessum mönnum er kennt í lögregluskóla ríkisins, a.m.k. ekki lengur hélt ég, kom tímabil þar sem kennarar sögðu nemendum að þeir væru aðeins einu þrepi neðar en almættið. Hugsaði ósjálfrátt um Geirfinnsmálið og játningarnar þar, viljum við annað svoleiðis skrípamál?

Miðað við þá lögreglumenn sem ég kannast við þá hlýtur þetta að vera undantekning, vona það a.m.k.

Svo getur vel verið að drengurinn sé með einhverja sakaskrá og að lögreglan kannist við hann...veit ekki. Finnst þetta samt full harkaleg meðferð að hóta manninum gæsluvarðhaldi og sérstaklega í ljósi þess að þarna var röð þjófnaðarmála. Vona að þeir biðji hann afsökunar. 


mbl.is Lögreglan sakaði son sjoppueiganda um rán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lifið og látið lifa...

Ekki búinn að sjá þessa mynd og efast að ég skoði hana nokkuð, vil helst tala við þá sem stunda trúarbrögð til þess að kynnast þeim í stað þess að fá þetta frá 3. aðila.

Málið er það að ég held að Íslendingar eru ekkert mjög trúaðir, kirkjan er orðin partur af menningunni ekkert annað. Þetta er bara orðin fastur hluti af lífi okkar sem við pælum lítið sem ekkert í. 

Ég vona að við séum ekki að fara að snúa þeirri þróun við því trú er sá málstaður sem mest er drepið fyrir og verið að rífast um hluti sem aldrei verður hægt að sanna af eða á. Þetta er eins og að rífast um hvort að glasið sé hálffullt eða hálftómt. 

Islam er trúarbragð, abrahamískt meira að segja sem þýðir að kristni er því náskylt fyrirbæri. Öll trúarbrögð eiga sér öfgamenn líka kristni, t.d. Dubayah Bush fyrir vestan okkur og Hr. Íranforseti "sprengjum Ísrael".

Erum við sem kristið fólk stolt af okkar öfgamönnum? Eru þeir hávær minnihluti? jamm... og ég er nokkuð viss um að það sama sé uppi á teningnum hinumeginn við hafið hjá múslimum. Þeir hafa Jihad og við höfðum Krossferðirnar. Þess ber að geta að núna er árið  1429 AH hjá múslimum. 

Hvað voru kristnir menn að gera af sér fyrir 600 árum? Þetta er trúarbragð sem er að þroskast ennþá. Held að menn ættu að minnast þess að kristnir klerkar brenndu fólk á báli fyrir litlar sem engar sakir annað en að benda á náttúrulögmál sem við tökum núna sem góð og gild.  


mbl.is „Fitna" fjarlægð af netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vil vita meira!

Er þetta viðvörun til þessara meintra aðila að láta af þessari hegðun eða eru þetta virkilegar ásakanir sem verða rannsakaðar og farið með alla leið í kerfinu?

Erum við kannski að tala um að það verði sleginn díll í einhverju reykfylltu herbergi? 

 

En mér finnst að fjölmiðlar landsins ættu nú að sækjast eftir frekari útskýringum og hvort að Davíð sé virkilega að meina að einhverjir ÍSLENSKIR braskarar hafi gert tilraun til þess að setja efnhag heimaland síns á annan endann?

Enda sýnist manni að það ætli að verða hægara sagt en gert að lagfæra þetta hrun á krónunni.

Var að heyra út undan mér að hér kunni að vera á ferðinni tilraun til að koma Evrunni á framfæri með valdi vegna veikleika krónunnar. langsótt en hverju á maður að trúa þegar ríkisstjórnin segir ekkert og Seðlabankastjóri er að varpa fram samsærikenningum?


mbl.is Einhverjir kunna að hafa haft óeðlileg áhrif á gengið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Díses ekki meir um brjóst...

Ég er aðdáandi brjósta, hvort sem þau eru á hreyfingu eður ei.

Finnst þetta umræða sem er bara að reyna að búa til vandamál þó að hún eigi alveg rétt á sér. Er ekki á móti berun brjósta á nokkurn hátt. Finnst þetta að vísu skrýtið þegar maður sér þetta á almannafæri en það er bara það að þetta er ekki algengt. En ég finn bara ekkert að þessu í sundi, konur eru líka menn og mega vera berar að ofan ef þeim svo sýnist. Blygðunarkennd er eitthvað sem ég held að sé bara tilbúinn hlutur og byggist á einhverjum framleiddum gildum sem eru aldrei í takt við tímann. Gildi eru flæðandi hlutur og í dag eru ber brjóst fínn hlutur. Kannski að eftir 50 ár kvarti maður um það hversu krakkar séu íhaldssamir um alla hluti og fari að tala um gömlu góðu dagana þegar brjóstin máttu vera frjáls.

 

En ég er aðallega pirraður á þessari frétta umfjöllun vegna þess að hún minnir mann á það að það eru ennþá sálir þarna úti sem ekki geta séð nakið hold án þess að skammast sín eða hneykslast en eru algjörlega búin að gleyma að svona fæðumst við og lítum svona út á okkar nánustu stundum með öðrum. Líkaminn er ekki eitthvað sem á að bendla við skömm. Þetta er fallegur og eðlilegur hlutur. 


mbl.is Hefð fyrir berum brjóstum í Hveró?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjallar og kosningar um hluti...

Ég leyfi mér að efast að núverandi forusta Sjálfstæðisflokksins sé tilbúin í kosningar um málefni sem þeir vilja stjórna algjörlega sjálfir. Hingað til hafa þessir aðilar ekki sýnt sig viljuga til að kalla til almennra kosninga um eitt né neitt málfefni sem mögulega hefði átt að kjósa um. Þessir aðilar telja sig sjálfa hafa umboð og hafa að sjálfsögðu viljann til að taka þessar ákvarðanir, ábyrgðin er svo þjóðarinnar þar sem að við eigum að hafa kosið þessa náunga yfir okkur.

Ég sé ekki að kosið verði um eitt né neitt varðandi ESB á meðan Sjálfstæðisflokkurinn er við völd og er þetta ekki nein pólitík í mér, hata alla flokkana jafnt sko. Þetta er bara praktík og raunsæi, þessir aðilar vilja ráða og gera það eins og er.

Það er þó ágætt að sjá að ungviðið í öðrum flokkum er farið að sjá að það er kannski ekki svo slæmt að skjóta málum til almúgans til ákvörðunar. Þetta vantar hér á Íslandi finnst mér, maður fær ekki svo oft að taka beinar ákvarðanir um hluti...


mbl.is SUF vill kosningar um hvort hefja eigi ESB viðræður í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til Fjan... með Benzínið hvað með Dísilolíuna?

Skoðaði Benzinpriser síðuna.....sé að það er ekki á mörgum stöðum þessi halli á dísel á móti Benzín...keyri nú um á dísel jálk sem er neyslugrannur en 10 kr munurinn er harður miðað við að þessir bílar eiga að vera umhverfisvænari til langstíma litið og nota minna eldsneyti.

Skil ekki þennan mikla mun hér á landi miðað við nágranna okkar. Í flestum Erópuríkjum virðist þetta vera jafndýrt ef ekki ódýrari kostur.... 


mbl.is Bensín dýrara í Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Himinninn er að falla!

bleh, fyrirsjánlegt við hverju búast menn þegar ráðamenn koma fram í CNN og segja að allt sé í lagi  og að góð staða bankanna sé vel varðveitt leyndó þegar allar tölur og staðreyndir virðast benda til annars?

Annars er ég aðallega að pæla í því hvort að olíufélögin hækki verðið strax, birgðirnar svo litlar þegar þarf að hækka og svo eiga þeir helling af birgðum þegar að lækkun væri eðlileg. Virkilega fúll yfir þessum kostnaði.  Sérstaklega að dísel er að hækka meira í verði...var ekki ætlast til þess að diesel ætti að verða betri kosturinn eftir breytingarnar?

Skammtímaminni þeirra sem manna brúnna í þjóðarskútunni er hrikalegt. Ætli niðurfellingin á vörugjaldinu verði ekki líka látin bíða til að draga úr neyslu og þenslu í þjóðfélaginu og ætli Helguvíkur framkvæmdin og Sundabraut dragist um nokkur ár..... 


mbl.is Krónan í frjálsu falli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband